Hvert skilti er sérsmíðað, ekkert er á lager.
Þar sem áletrunin er grafin gröfum við hana ofan í efnið sjálft í stað þess að prenta hana á filmu. Grafin áletrun situr í plötunni og dofnar ekki með árunum.
Þú velur efni og lit, stærð og form og slærð inn nöfnin. Skiltið er svo handgert á verkstæðinu okkar í Reykjanesbæ.
Upplýsingar
Ferhyrnt hurðaskilti úr tvílitu akrýli með nöfnunum ykkar. Letrið er grafið í gegnum efra lagið svo að neðri liturinn kemur fram í stöfunum. Það er grafið í efnið, ekki prentað, og dofnar því ekki með tímanum. Hér er mesta litaúrvalið hjá okkur: svart, hvítt, gyllt eða silfur. Akrýlið er UV-varið og þolir íslenskt veður, og hentar jafnt á útihurð og inni í stigagangi. Verðið fer eftir stærð skiltisins, ekki fjölda nafna. Í töflunni hér fyrir neðan sérðu hvaða stærð við mælum með miðað við fjölda nafna. Hægt er að bæta heimilisfangi við.
Efni: Tvílitt akrýl
Lögun: Ferhyrnt
Litir: Svart, hvítt, gyllt eða silfur
Festing: 3M límband (fylgir með)
Notkun: Hurðir, póstkassar, íbúðir og húsfélög
Framleiðsla: Íslensk
Umhirða: Rakur klútur og vatn með smá sápu, forðast sterk efni
Stærðir (Nafnafjöldi sem við mælum með, hæð × breidd)
| Nafnafjöldi | Hæð | Breidd |
| 1-2 nöfn | 5 cm | 12 cm |
| 3-5 nöfn | 7,5 cm | 12 cm |
| 6+ nöfn | 10 cm | 12 cm |
Afgreiðsla
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma. Frí heimsending um allt land.
Spurningarnar sem við fáum oftast.
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma.
Með 3M límbandi sem er komið á bakhliðina. Það þarf hvorki að bora né skrúfa, bara þurrka flötinn og þrýsta skiltinu á.
Já, öll efnin mega vera úti. Akrýlið er UV-varið og áletrunin er grafin ofan í efnið. Messing dökknar með tímanum úti, og fyrir grafið stál má velja sýruþvott sem gefur betri endingu.
Já, þú velur bara stærðina sem passar á kassann. Verðið fer eftir stærð skiltisins en ekki fjölda nafna, svo það kostar ekkert aukalega þótt nöfnin séu fleiri.
Já, það er ekkert mál að smíða í annarri stærð en þeim sem eru í boði hér. Sendu okkur póst á sm@skiltiogmerkingar.is með stærðinni sem þig vantar, þá sendum við þér verð.
Já. Við merkjum heila stigaganga og fjölbýlishús og gefum tilboð þegar pantað er fleira en eitt skilti. Sendu okkur póst á sm@skiltiogmerkingar.is með fjölda skilta og nöfnunum sem eiga að koma á þau, þá sendum við verð til baka.
Öll efnin henta bæði inni og úti.