Skilti og merkingar
Ferhyrnt WC skilti - veldu táknin
Ferhyrnt WC skilti - veldu táknin
Ferhyrnt WC skilti þar sem þú velur eitt til fjögur tákn og ræður röðinni. Platan lagar sig að fjöldanum: með einu tákni er skiltið ferningur og hvert tákn til viðbótar lengir það. Þannig getur þú haft til dæmis WC og skiptiaðstöðu, WC og aðgengi, eða bara aðgengi.
Táknin eru karl og kona, karlar, konur, WC, salerni, þvagskál, aðgengi, skiptiaðstaða, sturta og ræsting. Salernistáknið merkir snyrtingu eftir aðstöðu en ekki kyni, eins og reglugerð um hollustuhætti (nr. 903/2024) mælir með.
Útskorna útgáfan er skorin í gegnum plötuna, svo hurðin eða veggurinn sést í gegnum táknið. Hún fæst í 3 mm hnotu og í hvítu eða svörtu akrýli, glans eða matt. Grafna útgáfan er grafin í tvílitað akrýl í hvítu, svörtu, silfri eða gulli, og þá er táknið í öðrum lit en platan.
Stærð: 10 cm hátt skilti er 10, 20, 27 eða 34 cm langt eftir fjölda tákna og 15 cm hátt skilti er 15, 30, 40 eða 50 cm langt.
Vantar þig mörg skilti fyrir fyrirtæki, hótel eða húsfélag? Sendu okkur póst á sm@skiltiogmerkingar.is og við gerum tilboð í magnið.
Festing: 3M límband fylgir, svo það þarf ekki að bora.
Framleiðsla: Íslensk
Umhirða: Þurrka með röku, forðast sterk leysiefni
Afgreiðsla
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Frí heimsending um allt land.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
