Persónuverndarstefna
Síðast uppfært: 8. október 2026
Skilti og merkingar (Skilti og Merkingar & Tec ehf., kt. 450901-3260) rekur þessa netverslun og vefsíðu („Þjónustan“). Netverslunin er rekin á tækni Shopify.
Þessi persónuverndarstefna lýsir því hvaða persónuupplýsingum við söfnum, hvernig við notum þær og hverjum við miðlum þeim þegar þú heimsækir vefsíðuna, verslar hjá okkur eða átt samskipti við okkur á annan hátt. Ef ósamræmi er á milli skilmála okkar og þessarar stefnu gildir þessi stefna um persónuupplýsingar.
Ábyrgðaraðili
Ábyrgðaraðili persónuupplýsinga þinna er Skilti og Merkingar & Tec ehf., kt. 450901-3260, Hólmbergsbraut 9a, 230 Reykjanesbær, netfang sm@skiltiogmerkingar.is, sími 454-1001.
Persónuupplýsingar sem við söfnum
Persónuupplýsingar eru upplýsingar sem auðkenna þig eða sem með góðu móti er hægt að tengja við þig. Eftir því hvernig þú notar Þjónustuna getum við unnið með eftirfarandi upplýsingar:
- Tengiliðaupplýsingar: nafn, heimilisfang, afhendingarheimilisfang, greiðslufang, símanúmer og netfang.
- Kennitala: ef þú velur greiðsluleið sem krefst hennar, t.d. reikning í heimabanka.
- Pöntunarupplýsingar: vörur sem þú pantar, texti, merki og myndir sem þú sendir okkur til framleiðslu, skil og afpantanir.
- Greiðsluupplýsingar: greiðslumáti, staðfesting á greiðslu og færsluupplýsingar. Kortanúmer vinnur greiðslugáttin og við geymum þau ekki.
- Aðgangsupplýsingar: ef þú stofnar aðgang, netfangið sem þú skráir þig inn með og stillingar þínar.
- Samskipti: það sem þú skrifar okkur í tölvupósti eða á annan hátt, t.d. myndir sem fylgja beiðni um ánægjuábyrgð.
- Umsagnir: ef þú skrifar umsögn um vöru, nafn þitt eins og það birtist með umsögninni.
- Upplýsingar um tæki og notkun: IP-tala, vafri, tæki og hvernig þú notar vefsíðuna.
Hvernig við notum upplýsingarnar og á hvaða heimild
- Til að afgreiða pöntun og efna samning við þig: taka við pöntun og greiðslu, smíða og senda vöruna, afgreiða skil, galla og ánægjuábyrgð, og halda utan um aðganginn þinn (2. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018).
- Til að fullnægja lagaskyldu: bókhald og reikningar (3. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018).
- Vegna lögmætra hagsmuna: öryggi vefsins, varnir gegn svikum og svör við fyrirspurnum. Hagsmunir okkar eru að reksturinn sé öruggur og að við getum svarað þér og leyst úr málum (6. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018).
- Með samþykki þínu: vafrakökur til greiningar og auglýsinga, og markpóstur (1. tölul. 9. gr. laga nr. 90/2018; 88. og 94. gr. laga nr. 70/2022). Markpóst um eigin vörur megum við þó senda viðskiptavinum án sérstaks samþykkis, ef þeir geta afþakkað hann þegar netfangið er skráð og í hverjum pósti (2. mgr. 94. gr. laga nr. 70/2022).
Nafn og netfang, og heimilisfang ef við sendum vöruna, þurfum við til að geta afgreitt pöntun. Án þeirra getum við ekki tekið við henni.
Hverjir vinna upplýsingarnar með okkur
Við notum eftirfarandi þjónustuaðila. Þeir fá aðeins þær upplýsingar sem þeir þurfa fyrir sitt verk:
- Shopify: verslunarkerfið, hýsing vefsins, pantanir, aðgangur viðskiptavina og tilkynningar í tölvupósti.
- Teya: kortagreiðslur.
- Payday: reikningar, kröfur í heimabanka og bókhald.
- Pósturinn: fær nafn og heimilisfang til að koma sendingunni til þín.
- Judge.me: umsagnir viðskiptavina á vefsíðunni.
- Google: Google Analytics, Google Ads og Google Merchant Center, aðeins ef þú samþykkir vafrakökur.
- Meta (Facebook og Instagram): mælingar og auglýsingar, aðeins ef þú samþykkir vafrakökur.
Auk þess hlaðast sumir hlutar vefsíðunnar, t.d. umsagnir og greiðslumerki, frá þessum aðilum og öðrum forritum í versluninni. Þá fær viðkomandi IP-tölu tækisins þíns og upplýsingar um vafrann, óháð vafrakökum.
Við getum líka þurft að afhenda upplýsingar ef lög krefjast þess, til að gæta réttar okkar í ágreiningi, eða ef reksturinn er seldur eða sameinaður öðrum.
Tengsl við Shopify
Shopify vinnur persónuupplýsingar fyrir okkur til að reka verslunina. Shopify notar einnig tilteknar upplýsingar um samskipti þín við verslunina og Shopify-vettvanginn til að tryggja, þróa og bæta þjónustu sína. Í þeim tilvikum ber Shopify sjálft ábyrgð á vinnslunni, þar á meðal að svara beiðnum um réttindi þín tengd henni.
Flutningur út fyrir EES
Sumir þjónustuaðilar okkar geyma eða vinna upplýsingar utan Evrópska efnahagssvæðisins, t.d. í Bandaríkjunum eða Kanada. Þá byggist flutningurinn á ákvörðun um að landið veiti fullnægjandi vernd eða á viðurkenndri flutningsleið, t.d. stöðluðum samningsákvæðum.
Hve lengi við geymum upplýsingar
Við geymum upplýsingar á meðan við þurfum þær til að afgreiða pöntun, sinna ánægjuábyrgð og gallamálum, halda utan um aðganginn þinn eða leysa úr ágreiningi. Bókhaldsgögn, t.d. reikninga, geymum við í sjö ár frá lokum reikningsárs eins og lög krefjast (20. gr. laga nr. 145/1994 um bókhald).
Öryggi
Við gerum viðeigandi ráðstafanir til að vernda upplýsingarnar, en engin öryggisráðstöfun er fullkomin. Sendu okkur ekki viðkvæmar upplýsingar um ótryggar leiðir.
Börn
Þjónustan er ekki ætluð börnum. Ef þú ert foreldri eða forráðamaður barns sem hefur veitt okkur persónuupplýsingar getur þú haft samband og óskað eftir að þeim verði eytt.
Réttindi þín
Þú átt rétt á:
- aðgangi að persónuupplýsingum sem við höfum um þig,
- leiðréttingu rangra upplýsinga,
- eyðingu upplýsinga,
- takmörkun vinnslu,
- flutningi eigin gagna, þ.e. að fá afrit af upplýsingunum og í sumum tilvikum láta flytja þær til annars aðila,
- andmælum við vinnslu sem byggist á lögmætum hagsmunum, þar á meðal beinni markaðssetningu,
- afturköllun samþykkis hvenær sem er, þar sem vinnsla byggist á samþykki. Afturköllun hefur ekki áhrif á vinnslu sem átti sér stað áður.
Réttindin gilda óháð því hvar þú býrð, með þeim undantekningum sem lög gera ráð fyrir (15.-21. gr. reglugerðar (ESB) 2016/679; 17., 20. og 21. gr. laga nr. 90/2018).
Þú getur afþakkað markpóst með afskráningarhlekk í hverjum pósti. Við getum þó áfram sent pósta sem tengjast pöntunum þínum eða aðgangi.
Til að nýta réttindin sendir þú okkur tölvupóst á sm@skiltiogmerkingar.is. Við gætum þurft að staðfesta hver þú ert áður en við afgreiðum beiðnina.
Kvartanir
Ef þú vilt kvarta yfir því hvernig við vinnum persónuupplýsingar skaltu hafa samband við okkur. Þú getur líka alltaf lagt fram kvörtun hjá Persónuvernd (island.is/s/personuvernd) (2. mgr. 39. gr. laga nr. 90/2018), eða hjá persónuverndaryfirvaldi þar sem þú býrð.
Breytingar á stefnunni
Við gætum uppfært þessa stefnu, t.d. ef starfshættir okkar eða lög breytast. Við birtum uppfærða útgáfu á þessari síðu og breytum dagsetningunni „Síðast uppfært“.