Þjónustuskilmálar

Síðast uppfært: 8. október 2026

Með því að nota vefsíðuna okkar eða leggja inn pöntun samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Ef þú ert ósammála skilmálunum skaltu ekki nota vefsíðuna eða þjónustuna.

1. Um okkur

Netverslunin Skilti og merkingar er rekin af Skilti og Merkingar & Tec ehf., Hólmbergsbraut 9a, 230 Reykjanesbær. Félagið er skráð í fyrirtækjaskrá Skattsins.
Kennitala: 450901-3260
VSK-númer: 72088
Netfang: sm@skiltiogmerkingar.is
Sími: 454-1001

2. Pantanir og sérsmíði

Flestar vörur eru sérsmíðaðar (t.d. með nafni, heimilisfangi eða sértexta).
Þú berð ábyrgð á að upplýsingar sem þú slærð inn (t.d. stafsetning, nafn, heimilisfang, stærð og efni) séu réttar áður en pöntun er staðfest.

Við getum hafnað pöntun eða hætt við hana ef verð eða vara var augljóslega ranglega skráð (5. mgr. 3. gr. reglna nr. 536/2011) eða ef grunur er um svik eða misnotkun. Þá endurgreiðum við allt sem greitt var.

3. Verð og greiðslur

Öll verð á vefsíðunni eru með VSK.
Þú greiðir með þeim greiðsluleiðum sem birtast þegar þú gengur frá pöntuninni. Við geymum ekki greiðslukortaupplýsingar.

4. Framleiðslutími og afhending

Framleiðslutími getur verið mismunandi eftir vöru og álagi. Áætlaður framleiðslutími og afhendingarmátar koma fram í Sendingarstefnu.

5. Skil, endurgreiðslur og kvartanir

Í Skila- og endurgreiðslustefnu er útskýrt hvernig skil og endurgreiðslur fara fram. Þar eru einnig skilmálar ánægjuábyrgðar okkar, sem gildir um allar vörur, og þar er réttur þinn vegna galla útskýrður.

6. Myndir og litir

Myndir eru til viðmiðunar. Litur og áferð geta verið örlítið mismunandi eftir skjám og efnis- eða framleiðslulotum.

7. Hugverkaréttur

Allt efni á vefsíðunni (textar, myndir, hönnun, merki o.fl.) er eign Skilti og merkingar eða notað með leyfi rétthafa. Það má ekki afrita eða nýta án skriflegs leyfis.

Ef þú sendir okkur efni til framleiðslu (t.d. merki eða mynd) staðfestir þú að þú hafir rétt til að nota það.

8. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar

Við leggjum metnað í gæði. Gagnvart neytendum fer um ábyrgð okkar og skaðabætur eftir lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Í viðskiptum milli fyrirtækja nær ábyrgð okkar ekki til óbeins eða afleidds tjóns (t.d. tapaðrar veltu), nema skylt sé samkvæmt lögum.

9. Breytingar á skilmálum

Við getum uppfært skilmálana af og til. Breytingar gilda um pantanir sem gerðar eru eftir að uppfærð útgáfa birtist. Um fyrri pantanir gilda skilmálarnir eins og þeir voru þegar pöntunin var gerð.

10. Lög og varnarþing

Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ágreiningur skal að jafnaði reiddur til lykta fyrir dómstólum á Íslandi, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum reglum.

Ef ágreiningur rís getur þú leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa, Borgartúni 21, Reykjavík (kvth.is).