Sendingar

Síðast uppfært: 8. október 2026

1. Framleiðsla og afgreiðsla

Flestar vörur okkar eru sérsmíðaðar. Pöntun fer í framleiðslu eftir að greiðsla hefur verið staðfest.

Áætlaður framleiðslutími: 3-5 virkir dagar.
Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma. Á álagstímum (t.d. í kringum hátíðir) getur framleiðslutími lengst.

2. Sendingarmátar og afhendingartími

Við sendum pantanir með Póstinum.
Áætlaður afhendingartími innanlands: 1-3 virkir dagar eftir að sending fer frá okkur.

Ef boðið er upp á rakningu færðu rakningarnúmer þegar sendingin er skráð.

Þú getur líka sótt pöntunina til okkar á Hólmbergsbraut 9a, 230 Reykjanesbær.

3. Sendingarkostnaður

Frí heimsending um allt land fylgir öllum pöntunum.

Ef þú vilt frekar fá sendinguna í póstbox, til dæmis ef húsið er illa merkt, greiðir þú fyrir það og verðið birtist þegar þú gengur frá pöntuninni.

Póstur til baka: Þegar þú sendir vöru til baka til okkar samkvæmt Skila- og endurgreiðslustefnunni greiðum við póstinn.

4. Rangt heimilisfang eða óafhent sending

Þú berð ábyrgð á að allar upplýsingar, þar á meðal heimilisfang, séu réttar.
Ef sending kemur til baka til okkar vegna rangs heimilisfangs, af því að ekki var tekið við henni eða af öðrum ástæðum sem rekja má til rangra upplýsinga, getur þú þurft að greiða fyrir að fá hana senda aftur.

5. Tjón í flutningi

Varan er á okkar ábyrgð þar til þú hefur tekið við henni (14. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup). Ef sending berst skemmd:

  • Hafðu samband á sm@skiltiogmerkingar.is sem fyrst eftir að þú tekur við sendingunni, helst með mynd af skemmdinni. Tilkynning innan tveggja mánaða frá því að þú tókst eftir skemmdinni telst alltaf nógu fljót, svo framarlega sem lokafresturinn er ekki liðinn. Lokafresturinn er almennt tvö ár frá móttöku (27. gr. laga nr. 48/2003; sjá kafla 4 í Skila- og endurgreiðslustefnu).
  • Sendu myndir af vöru og umbúðum.

Við metum málið og bjóðum viðeigandi lausn (t.d. nýja smíði eða nýja sendingu), án kostnaðar fyrir þig. Ef við þurfum skemmdu vöruna til baka greiðum við póstinn.