WC skilti og klósettskilti
WC skilti, klósettskilti og salernisskilti: hringlaga skilti með einu tákni, eða ferhyrnt skilti þar sem þú raðar saman allt að fjórum táknum. Útskorið í hnotu eða akrýl, eða grafið í tvílitað akrýl. Skilti og merkingar smíðar WC skiltin í Reykjanesbæ frá 5.990 kr. Framleiðslan tekur 3-5 virka daga og heimsending er frí um allt land.
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Frí heimsending um allt land.











Um WC skilti og klósettskilti
WC skilti og klósettskilti í hnotu, hvítu eða svörtu akrýli, eða grafin í tvílitað akrýl í hvítu, svörtu, silfri eða gulli. Hringlaga skilti með einu tákni, eða ferhyrnt skilti þar sem þú raðar saman allt að fjórum táknum: karl og kona, WC, salerni, aðgengi, skiptiaðstaða og fleiri.
Spurningarnar sem við fáum oftast.
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →Já, þetta er sama skiltið. Við köllum það WC skilti, en það er líka kallað salernisskilti, klósettskilti eða skilti á snyrtingu. Þú velur hringlaga skilti með einu tákni eða ferhyrnt skilti með allt að fjórum táknum, til dæmis WC og skiptiaðstöðu.
Á útskornu skilti er táknið skorið í gegnum plötuna, svo hurðin eða veggurinn sést í gegnum það. Útskorið fæst í hnotu og í hvítu eða svörtu akrýli, glans eða matt, allt 3 mm. Grafið skilti er úr 1,6 mm tvílituðu akrýli. Liturinn sem þú velur, hvítt, svart, silfur eða gyllt, er liturinn á plötunni og táknið kemur fram í öðrum lit.
Það er skilti sem merkir snyrtinguna eftir aðstöðu en ekki kyni, til dæmis með salernistákni eða stöfunum WC. Í 19. gr. reglugerðar um hollustuhætti (nr. 903/2024) segir að æskilegt sé að snyrtingar séu aðstöðumerktar, til dæmis með myndum af salerni, frekar en kynjamerktar.
Já. Veldu ferhyrnt skilti og raðaðu saman einu til fjórum táknum, til dæmis WC og skiptiaðstöðu eða salerni, aðgengi og skiptiaðstöðu. Skiltið lengist eftir því hve mörg táknin eru.
3M límband fylgir, svo það þarf ekki að bora.
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma.