Öryggisnúmer á sumarhús, skorið út eftir þínum tölustöfum.
Öryggisnúmerið er skráð hjá Neyðarlínunni (112) og notað ef þarf að kalla til hjálp. Það er úthlutað af Landssambandi sumarhúsaeigenda (sumarhus.is), ekki af okkur: við smíðum skiltið eftir númerinu sem þú slærð inn.
Öryggisnúmerið þitt á skilti fyrir sumarhúsið, skorið út og merkt eftir þínum tölustöfum.
Öryggisnúmerið er skráð hjá Neyðarlínunni (112) og notað ef þarf að kalla til hjálp. Það er úthlutað af Landssambandi sumarhúsaeigenda (sumarhus.is), ekki af okkur - við smíðum skiltið eftir númerinu sem þú slærð inn.
Veldu stærð og efni, sláðu inn öryggisnúmerið (6 til 8 tölustafir) og sjáðu skiltið um leið. Skiltið er skorið út með leysiskurði, með götum fyrir skrúfur og tappa eða án gata fyrir lím.
Spurningarnar sem við fáum oftast.
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma. Frí heimsending um allt land.
Já. Magnafslátturinn reiknast af öllum vörunum í körfunni saman: 10% af 2 til 4 vörum og 15% af 5 eða fleiri.
Öryggisnúmer sumarhúss byggist á fastanúmeri hússins, sem er á greiðsluseðli fasteignagjalda og í fasteignaskrá. Sótt er um öryggisnúmerið hjá Landssambandi sumarhúsaeigenda (sími 581 3200, sumarhus@sumarhus.is). Við smíðum skiltið en úthlutum ekki númeri og skráum það ekki hjá 112. Nánari upplýsingar eru á 112.is.
Þá sækirðu um það fyrst. Þegar þú hefur fengið númerið skrifarðu það í reitinn hér á síðunni og pantar skiltið.
Þú velur skilti með 2 götum eða 4 götum: göt, skrúfur og múrtappar fylgja. Án gata er skiltið fest með lími.
Já, skiltið þolir að vera úti í veðri.


