Skilti fyrir listaverk, eins og á söfnum.
Skilti við málverk, ljósmynd eða skúlptúr með nafni listamannsins, titli verksins og því sem þú vilt segja um það. Þú velur útlit, letur, efni og stærð og sérð skiltið um leið.
Tvílitt akrýl í níu litum, stál með svörtu letri, grafið stál eða grafið messing.
Skilti við málverk, ljósmynd eða skúlptúr, eins og á söfnum og í galleríum. Nafn listamannsins, titill verksins, ártal og það sem þú vilt segja um verkið, í einu af fjórum útlitum og því letri sem þú velur. Þú sérð skiltið mótast á síðunni um leið og þú skrifar.
Efni: Tvílitt akrýl (1,6 mm) í níu litum, stál með svörtu letri, grafið stál eða grafið messing
Stærðir: 5 × 12, 7,5 × 12 og 10 × 12 cm (hæð × breidd)
Lögun: Ferhyrnt, bein horn
Festing: 3M límband (fylgir með)
Logo: Valfrjálst, 1.000 kr. aukalega
Framleiðsla: Íslensk
Í tvílita akrýlinu er letrið grafið í gegnum efra lagið svo að neðri liturinn kemur fram í stöfunum. Það er grafið í efnið, ekki prentað. Bláa, rauða, gula og græna akrýlið er sama efni og í sömu litum og upplýsinga- og öryggisskiltin.
Afgreiðsla
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma. Frí heimsending um allt land.
Spurningarnar sem við fáum oftast.
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →5 × 12 cm rúmar nafn listamannsins, titil og ártal. 7,5 × 12 cm rúmar líka uppruna, tækni, stærð verksins og eiganda. 10 × 12 cm bætir við stuttum texta um verkið. Forskoðunin sýnir strax hvort allt kemst fyrir.
Já. Smelltu á + Logo undir myndinni og hladdu skránni upp í reitnum sem birtist undir upplýsingunum, áður en þú setur í körfu. Hún fylgir pöntuninni.
Áttu ekki skrá? Skrifaðu þá lýsingu í reitinn undir upphleðslunni. Við reynum að finna logoið eða búa það til eftir lýsingunni.
Með 3M límbandi, því sama og á hurðaskiltunum okkar. Það fylgir með.
Settu hvert skilti í körfu með sínum texta. Magnafslátturinn reiknast af öllum vörunum í körfunni saman, nema Owala brúsum.
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma. Frí heimsending um allt land.




