Heimili 4 mín lestur24. október 2026Síðast uppfært 25. október 2026

Húsnúmer sem sést frá götunni: stærð, litur og staðsetning

Hvaða stærð á húsnúmerið að vera og hvaða litur sést best á veggnum? Einföld ráð um að velja húsnúmer sem sendlar og gestir finna strax.

Skilti og merkingarFeðgar á verkstæði í Reykjanesbæ
Húsnúmer útskorið úr akrýliHúsnúmer og heimilisfang á húsvegg - akrýl skiltiHúsnúmer ferhyrnt úr akrýli
Efni greinarinnar

    Húsnúmer sést frá götunni ef það er nógu stórt, með góðri andstæðu við vegginn og sett í augnhæð þar sem ljós fellur á það á kvöldin. Því lengra frá götunni sem húsið er, því stærra þarf númerið að vera: 10 cm tölur nálægt götu, 15 eða 20 cm ef húsið stendur lengra frá.

    Húsnúmer 28 og götuheitið Seltún á hvítu akrýlskilti á húsvegg
    Húsnúmer og götuheiti á akrýlskilti, smíðað á verkstæðinu okkar.

    Gott húsnúmer tekur enginn eftir. Það er bara þarna þegar sendillinn, pizzan eða gestirnir leita að réttu húsi. Slæmt húsnúmer taka hins vegar allir eftir, oftast í myrkri og rigningu með símann í hendinni.

    Hér eru ráðin sem við myndum gefa vini sem er að velja húsnúmer.

    Hvaða gerðir af húsnúmerum eru til?

    Við gerum húsnúmer á þrjá vegu, og valið fer mest eftir veggnum og smekknum.

    Stakar tölur. Hver tala er skorin út sér úr 3 mm akrýli og stendur ein og sér á veggnum. Tölurnar koma með tvöföldu lími á bakinu, svo það er mjög auðvelt að setja þær upp. Þetta er hreinasta útlitið og hentar vel á slétta veggi, timbur og klæðningu. Tölurnar koma í 10, 15 eða 20 cm hæð.

    Ferhyrnt húsnúmeraskilti. Hér er númerið skorið út úr plötu. Platan kemur í 14x14, 19x14 eða 29x19 cm og afmarkar númerið, sem hjálpar á grófum eða mynstruðum vegg þar sem stakar tölur myndu týnast.

    Húsnúmer og heimilisfang. Sama plata, en götuheitið fylgir með. Það er gott á hornhúsum, í nýjum hverfum og þar sem fleiri en ein gata liggur að húsinu.

    Hvað á húsnúmerið að vera stórt?

    Því lengra frá götunni sem húsið er, því stærra þarf númerið að vera. Það er eiginlega öll reglan.

    • Húsið stendur nálægt gangstéttinni: oft duga 10 cm tölur.
    • Nokkrir metrar eru að götunni, eða fólk sér húsið aðallega úr bíl: farðu frekar í 15 eða 20 cm.

    Einfalt próf: klipptu blað í stærðinni, límdu það upp og labbaðu út á götu. Sérðu það án þess að píra augun? Þá er stærðin rétt.

    Hvaða litur sést best á húsnúmeri?

    Hér skiptir andstæðan öllu. Svart númer á ljósum vegg og hvítt númer á dökkum vegg sést langbest. Grátt á grátt týnist, sama hversu stórt það er.

    Litirnir eru fjórir: hvítt og svart, hvort tveggja í glans eða matt. Matt gefur rólegra útlit og speglar síður sólinni. Glans er líflegra og grípur birtu.

    Á plötunum er gott að vita eitt: númerið er skorið alveg í gegn, svo veggurinn sést í gegnum tölurnar. Á hvítri plötu án baklýsingar sést númerið fyrst og fremst á skugganum sem tölurnar mynda. Þess vegna skiptir litur veggjarins máli þar líka.

    Hvaða letur er á húsnúmerunum?

    Á plötunum eru tölurnar skornar í letri sem er hannað þannig að miðjan í 0, 6 og 8 haldist á sínum stað (litlar brýr). Stöku tölurnar fást í þremur stílum: Hreint, Mjúkt og Klassískt.

    Bókstafir, til dæmis í 12B, eru alltaf hástafir. Það lítur betur út og les betur.

    Eiga húsnúmerin að vera með lími eða töppum?

    Stöku tölurnar eru alltaf límdar. Plöturnar geturðu fengið með lími eða með töppum. Tappar halda plötunni 25 mm frá veggnum, sem gefur skugga og dýpt. Þeir fást silfraðir eða svartir. Lím heldur plötunni flatri við vegginn og er einfaldast að setja upp.

    Hvar á að setja húsnúmerið?

    Settu númerið þar sem ljós fellur á það á kvöldin, helst nálægt útiljósi við innganginn. Hafðu það í augnhæð eða aðeins ofar, og ekki fyrir aftan tré, runna eða bíl sem stendur í innkeyrslunni.

    Ef inngangurinn er á hlið hússins borgar sig stundum að hafa númerið á götuhliðinni og annað við dyrnar.

    Algengar spurningar

    Þola húsnúmerin íslenskt veður? Já. Akrýlið okkar er UV-varið og gert fyrir útinotkun á Íslandi.

    Hvaða stærð á ég að velja? 10 cm ef húsið er nálægt götunni, 15 eða 20 cm ef það stendur lengra frá eða sést mest úr bíl.

    Get ég fengið bókstaf með, til dæmis 14A? Já, og bókstafurinn er alltaf hástafur.

    Hvað tekur langan tíma að fá húsnúmerið? Framleiðslan tekur 3-5 virka daga og pósturinn 1-3 virka daga. Heimsendingin er frí, og þú getur líka sótt til okkar á Hólmbergsbraut 9a í Reykjanesbæ.

    Ertu að velja húsnúmer?

    Ef þú ert ekki viss um stærð eða lit, endilega sendu okkur mynd af veggnum á sm@skiltiogmerkingar.is eða í gegnum hafa samband. Ef þú ert að merkja heilt fjölbýli er líka gott að lesa færsluna um skilti í sameign. Öll húsnúmerin eru á húsnúmerasíðunni.

    Lestu næst

    Tengdar greinar.

    Öll góðu ráðin
    Heimili4 mín

    Sumarhús: öryggisnúmer og rétt merking

    Öryggisnúmerið segir Neyðarlínunni hvar sumarhúsið er. Hér sérðu hvaðan númerið kemur, hvar skiltið á að vera og hvernig þú merkir bústaðinn rétt.

    Lesa
    Markhópasíða

    Allt fyrir heimilið.

    Skilti fyrir heimilið. Hurðir, húsnúmer, póstkassi og gjafir, sérsmíðað í Reykjanesbæ og sent heim.

    Skoða skiltin