Skilti og merkingar
Salerni - kynhlutlaust WC skilti
Salerni - kynhlutlaust WC skilti
Snyrting merkt eftir aðstöðu en ekki kyni. Táknið sýnir hvað er inni og allir mega nota snyrtinguna. Í reglugerð um hollustuhætti (nr. 903/2024) er mælt með að snyrtingar séu merktar á þennan hátt frekar en eftir kyni.
Útskorna útgáfan er skorin í gegnum plötuna, svo hurðin eða veggurinn sést í gegnum táknið. Hún fæst í 3 mm hnotu og í hvítu eða svörtu akrýli, glans eða matt. Grafna útgáfan er grafin í tvílitað akrýl í hvítu, svörtu, silfri eða gulli, og þá er táknið í öðrum lit en platan.
Stærð: 10, 15 eða 20 cm í þvermál.
Vantar þig mörg skilti fyrir fyrirtæki, hótel eða húsfélag? Sendu okkur póst á sm@skiltiogmerkingar.is og við gerum tilboð í magnið.
Festing: 3M límband fylgir, svo það þarf ekki að bora.
Framleiðsla: Íslensk
Umhirða: Þurrka með röku, forðast sterk leysiefni
Afgreiðsla
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Frí heimsending um allt land.
Ekki tókst að hlaða upp afhendingarmöguleikum
Deila
