Skýr merking sem þolir íslenskt veður.
Skiltin eru grafin í tvílitað akrýl. Efnið er tvö lög í ólíkum lit og við gröfum í gegnum efra lagið, svo táknið og textinn koma fram í lit þess neðra. Liturinn er í efninu sjálfu, ekki prentaður, og dofnar því ekki með árunum.
Flest skiltin fylgja ISO 7010 staðlinum með íslenskum texta og enskri þýðingu. Blá merkja skyldu, rauð bann og slökkvibúnað, gul viðvörun og græn neyðar- og björgunarleiðir. Finnurðu ekki skiltið sem þig vantar? Veldu „Eigin texti“ og við gröfum textann fyrir þig.
Gerir neyðarrofann auðfundinn, hvort sem hann er á vél, færibandi eða framleiðslulínu. Grænt skilti með ISO 7010 E020 tákninu og texta á íslensku og ensku (Neyðarrofi / Emergency stop), algengt á verkstæðum, í vélasölum og í fiskvinnslu.
Grafið í tvílitað akrýl, 1,6 mm, og límræma fylgir svo það þarf ekkert að bora. Fæst í grænu eða í hvítu, svörtu, gulli og silfri.
Stærð: 14 × 14 cm. Þarftu aðra stærð? Sendu línu á sm@skiltiogmerkingar.is og við gerum tilboð.
Spurningarnar sem við fáum oftast.
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →Já. Veldu „Eigin texti“ í flokknum sem á við og skrifaðu textann á íslensku, og á ensku ef þú vilt. Við gröfum hann í sama lit og stíl og hin skiltin í flokknum.
Já, þau henta bæði inni og úti. Textinn er grafinn í tvílitað akrýl, ekki prentaður, svo hann dofnar ekki með árunum.
Límræma fylgir hverju skilti, svo það þarf ekkert að bora.
Skiltin eru 14 × 14 cm og neyðarútgangsskiltið 14 × 29 cm. Þarftu aðra stærð? Sendu línu á sm@skiltiogmerkingar.is og við gerum tilboð.
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma.
