Akrýl, létt og hagstætt.
Skilti á kross úr tvílitu akrýli með nafni og dagsetningum. Letrið er grafið í gegnum efra lagið svo að neðri liturinn kemur fram í stöfunum. Það er grafið í efnið, ekki prentað, og dofnar því ekki með tímanum. Akrýlið er UV-varið og þolir íslenskt veður. Skiltið fæst svart eða hvítt og í tveimur stærðum, 6 × 20 cm og 7,5 × 30 cm. Þú velur kross eða hjartakross vinstra megin og dúfu, tvær dúfur, rós eða rós á stilk hægra megin. Fest með skrúfum eða 3M lími.
Tæknilegar upplýsingar
| Efni | Tvílitt akrýl, 1,6 mm |
| Litir | Svart eða hvítt |
| Festing | Boruð göt fyrir skrúfur eða 3M lím |
| Notkun | Krossar, leiði, minningasteinar |
Afgreiðsla
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma. Frí heimsending um allt land.
Spurningarnar sem við fáum oftast.
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →Allir íslenskir stafir og algengir evrópskir stafir.
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma.
Já, það er UV-varið og vatnshelt.