Hurðaskilti og nafnaskilti á hurð
Sérsmíðuð úr akrýli, áli, stáli eða messingi. Þú velur efni, lit, lögun og stærð og slærð inn nöfnin. Skilti og merkingar smíðar hurðaskiltin í Reykjanesbæ frá 6.990 kr. Framleiðslan tekur 3-5 virka daga og heimsending er frí um allt land.
3-5 virkir dagar í framleiðslu og 1-3 virkir dagar í pósti. Frí heimsending um allt land.
Um hurðaskilti og nafnaskilti á hurð
Hurðaskilti og nafnaskilti á hurð, sérsmíðuð úr akrýli, áli, stáli eða messingi. Þú velur efni, lit, lögun og stærð, slærð inn nöfnin og við sendum frítt um allt land.
Hentar á hurðir, póstkassa, fyrir húsfélög og á útihurðir hjá fyrirtækjum. 3M límband fylgir með, svo þú getur sett skiltið upp strax.
Efnin borin saman.
| Efni | Útlit og frágangur | Úti | Verð frá |
|---|---|---|---|
| Akrýl | Tvílitt akrýl, 1,6 mm, grafið svo kjarnaliturinn kemur fram. Ferhyrnt eða sporöskjulaga. Mesta úrvalið okkar.GullHvíttSilfurSvart | Já, UV-varið | 6.990 kr. |
| Ál | Látlaust málmútlit. Klassískt og endingargott, án ramma eða með ramma.Án rammaMeð ramma | Já | 6.990 kr. |
| Stál | 316 stál, burstað. Svartir stafir eða grafið í stálið. Fyrir grafið stál má velja sýruþvott sem gefur betri endingu (aukagjald). | Já | 11.490 kr. |
| Messing | Burstað og alltaf grafið. Varnarefni fæst sem valkostur fyrir messing, og örsmáar rispur eru eðlilegar á svona lifandi efni. | Já, dökknar með tímanum | 20.990 kr. |
Lykilatriði
- Framleitt á Íslandi
- Skiltagerð síðan 1999
- Frí heimsending um allt land
- Auðveld uppsetning (sterkt límband)
- Hentar heimilum, íbúðum, póstkössum, húsfélögum og fyrirtækjum
- Veldu stærð eftir nafnafjölda og lengd nafna.
Hvaða efni hentar þér?
Akrýl er mesta úrvalið af litum og lögun, ál hefur látlaust málmútlit og stál eða messing er toppurinn ef þú vilt það besta.
Útlit, notkun úti og verð frá eru í töflunni hér fyrir ofan.
Hvernig pantar þú?
Veldu vöruna hér fyrir ofan sem hentar (akrýl / ál / stál eða messing), sláðu inn nöfnin og kláraðu pöntunina.
Ef þú ert óviss um stærð:
5×12 cm hentar oft 1-2 nöfnum,
7,5×12 cm fyrir 3-5 nöfn og
10×12 cm fyrir 6+ nöfn
Hægt að velja minni skilti með fleiri nöfnum ef það hentar betur staðsetningunni sem þú límir skiltið á.
Algengar spurningar um hurðaskilti
Finnurðu ekki svarið hér? Sendu okkur póst og við aðstoðum þig.
sm@skiltiogmerkingar.is →Öll hurðaskilti koma með sterku 3M límbandi og eru því auðveld í uppsetningu á sléttu og hreinu yfirborði. Þurrkaðu yfir með spritti, merktu staðsetningu og þrýstu fast í 30-60 sek.
Það fer eftir hurðinni og útlitinu sem þú vilt. Akrýl er mesta úrvalið af litum og lögun, ál hefur látlaust málmútlit, stál er burstað og traust og messing er hlýtt og dökknar með árunum. Öll efnin þola að vera úti. Útlit, notkun úti og verð frá hvers efnis eru í töflunni efst á síðunni.
Við framleiðum á Íslandi. Framleiðslan tekur 3-5 virka daga og síðan 1-3 virka daga í pósti. Við sendum frítt um allt land. Ef pöntuð eru fleiri en 10 stykki getur framleiðslan tekið örlítið lengri tíma.
Það fer eftir stærð og lengd nafna. Við mælum með 5×12 cm fyrir 1-2 nöfn, 7,5×12 cm fyrir 3-5 nöfn og 10×12 cm fyrir 6+ nöfn.
Já, þú getur valið að bæta heimilisfangi við skiltið.
Já. Þú velur stærðina sem passar á kassann. Verðið fer eftir stærð, ekki fjölda nafna.
Frá þeim sem keyptu skiltið.
Aðrar vörur







