3 mín lestur25. október 2026

Hvað kostar hurðaskilti? Þetta ræður verðinu

Verð á hurðaskilti ræðst af efni og stærð. Akrýl og ál eru ódýrust, stál og messing dýrari. Fjöldi nafna ræður stærðinni. Magnafsláttur útskýrður.

Skilti og merkingarFeðgar á verkstæði í Reykjanesbæ
Hurðaskilti úr akrýl - nafnaskilti á hurðHurðaskilti sporöskjulaga úr akrýl - nafnaskilti á hurðHurðaskilti úr áli - nafnaskilti á hurð
Efni greinarinnar

    Verð á hurðaskilti ræðst fyrst og fremst af efninu og stærðinni. Akrýl og ál eru ódýrustu efnin, stál og messing dýrari. Fjöldi nafna ræður hvaða stærð þú þarft: 1-2 nöfn passa á minnstu stærðina, 3-5 á miðstærðina og 6 eða fleiri á þá stærstu. Verðið á hverri útgáfu sérðu í kortunum hér fyrir neðan.

    Hurðaskilti í gulli, silfri, hvítu og svörtu raðað á borð
    Hurðaskilti í mismunandi efnum og stærðum.

    Hér förum við yfir hvað hefur áhrif á verðið, svo þú getir valið skilti sem passar bæði hurðinni og buddunni.

    Hvaða efni er ódýrast?

    Hurðaskiltin okkar eru til úr fjórum efnum:

    • Tvílitt akrýl, ferhyrnt eða sporöskjulaga, í gulli, silfri, svörtu eða hvítu. Stafirnir eru grafnir í gegnum efsta lagið svo kjarnaliturinn kemur fram.
    • Ál með gröfnum nöfnum, í einni stærð, 7,5 x 15 cm.
    • Burstað 316 stál, með svörtum stöfum eða grafið.
    • Messing, grafið.

    Akrýl og ál eru ódýrust. Stál og messing kosta meira, bæði vegna efnisins og vinnunnar.

    Hvaða stærð þarf ég?

    Stærðin fer eftir því hve mörg nöfn eiga að vera á skiltinu. Ferhyrnda akrýlskiltið og stál- og messingskiltið eru 5 x 12 cm fyrir 1-2 nöfn, 7,5 x 12 cm fyrir 3-5 nöfn og 10 x 12 cm fyrir 6 nöfn eða fleiri. Sporöskjulaga skiltið er 15 cm á breidd í sömu þremur hæðum. Stærra skilti kostar aðeins meira.

    Það borgar sig ekki að troða mörgum nöfnum á litla skiltið. Stafirnir verða þá smáir og erfitt að lesa þá frá stigaganginum.

    Hvað fleira hefur áhrif á verðið?

    • Rammi: á ál-, stál- og messingskiltunum getur þú valið grafinn ramma gegn smá aukagjaldi.
    • Áferð á stáli og messingi: grafið stál kostar meira en stál með svörtum stöfum, því gröfturinn tekur lengri tíma. Sýruþvottur á gröfnu stáli og varnarefni á messingi eru valkostir sem bæta við verðið.
    • Heimilisfang: á mörgum skiltunum getur þú bætt heimilisfanginu við nöfnin.

    Hvað fylgir án aukakostnaðar?

    Heimsendingin er alltaf frí, um allt land. Flest skiltin koma með lími á bakinu, svo það þarf ekki að bora. Og þú sérð skiltið teiknað með þínum nöfnum á vörusíðunni áður en þú pantar.

    Er magnafsláttur?

    Já. Ef þú pantar 2-4 skilti færðu 10 % afslátt og 15 % af 5 eða fleiri. Afslátturinn reiknast af allri körfunni, svo það má blanda saman ólíkum skiltum. Það hentar til dæmis húsfélögum sem merkja allar íbúðirnar í einu. Fyrir stærri pantanir er best að senda okkur tölvupóst og við gerum tilboð.

    Algengar spurningar

    Hvað kostar ódýrasta hurðaskiltið? Ódýrustu skiltin eru úr akrýli og áli í minnstu stærð. Nákvæmt verð sérðu í kortunum hér að ofan og á vörusíðunum, því þar er það alltaf rétt.

    Kostar meira að hafa mörg nöfn? Ekki fyrir hvert nafn. Fleiri nöfn kalla hins vegar á stærra skilti, og stærra skilti kostar aðeins meira.

    Hvað tekur langan tíma að fá skiltið? 3-5 virka daga í framleiðslu og 1-3 virka daga í pósti.

    Þolir hurðaskiltið að vera úti? Já. Akrýlið er UV-varið og þolir íslenskt veður, og stálið er 316 stál. Meira um efnin í færslunni um efni í nafnaskiltum á hurð.

    Ertu að velja?

    Ef þú ert ekki viss um hvaða skilti hentar er færslan um hvernig á að velja hurðaskilti góð byrjun. Þú getur líka sent okkur línu á sm@skiltiogmerkingar.is eða í gegnum hafa samband.

    Lestu næst

    Tengdar greinar.

    Öll góðu ráðin