Afhendingar
Framleiðslutími er að jafnaði 7 til 14 virkir dagar áður en varan er tilbúin til afhendingar
Þegar varan hefur verið pöntuð og greidd fer hún í vinnslu innan fimm virkra dag og því tilbúin til afhendingar innan 14 virka daga á staðnum eða er sett í póst til kaupanda.
Af vörum sem dreift er af Póstinum gilda afhendingar, ábyrgðar og flutningsskilmálar Póstsins um afhendingu vörunnar.
Ef þú velur að fá að sækja vöru að Hólmbergsbraut 9a 230 Reykjanesbæ, þarftu að bíða eftir SMS eða tölvupósti frá framleiðanda, þess efnis að varan sé tilbúin til afhendingar á opnunartíma sem er frá 13:00 til 16:00 mánudaga til fimmtudags eða eftir nánara samkomulagi í síma 893-4105 eða með tölvupósti á [email protected]
Sendigjöld
- A4 umslag er með sendigjald upp á 500 kr. t.d. létt ígrafin skilti.
- Pakkar t.d. 2 kg. eru með sendigjald um 3000 kr.
Greiðslumátar
Í vefverslun www.skiltiogmerkingar.is er boðið upp á eftirfarandi greiðslumáta:
Millifærsla í banka eða heimabanka
Þegar þú hefur móttekið pöntunarstaðfestingu frá okkur, millifærir þú upphæðina inn á reikning okkar 0133 26 016797 Kt. 450901 3260, Skilti og merkingar og sendir staðfestingu á [email protected]
Ef vandamál koma upp við millifærslu eða staðfestingu er bent á að senda tölvupóst sem allra fyrst á [email protected] eða hringja í síma 454-1001.
Skilaréttur
Skilaréttur er aðeins 15 virkir dagar ef varan sem var framleidd eftir pöntun reynist gölluð og ekki eins og kaupandi óskaði.
Æskilegt er að varan sé í upprunalegum umbúðum og í upprunalegu ástandi og framvísun kaupnótu er skilyrði.
Ekki er hægt að skila gallalausri forsniðinni vöru t.d. ígröfnum skiltum sem eru sérsmíðað til fyrir viðskiptavin.
Á www.neytendastofa.is er að finna frekari upplýsingar um skilarétt. Vakin er athygli á því að sönnunarbyrði um að réttur til að falla frá samningi sé nýttur í samræmi við ákvæði 19. gr. laga um neytendasamninga nr. 16/2016, hvílir á viðskiptavininum, sbr. g-liður 1. mgr. 5. gr. laganna.
Lög og varnarþing samningur þessi er í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna hans skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur.
Hólmbergsbraut 9a
230 Reykjanesbæ
Kt. 450901 3260
Netfang: [email protected]
Sími: 454-1001
Höfundaréttur og vörumerki
Allt efni á vefsvæði SkiltiogMerkingar.is s.s. texti, grafík, lógó og myndir eru eign SkiltiogMerkingar.
Önnur notkun, t.d. afritun, breytingar, dreifing, sending, endurdreifing eða önnur notkun er bönnuð nema með skriflegu leyfi frá SkiltiogMerkingar.