Safn: Krossa- & minningaskilti

Skilti á kross er hannað af virðingu til að heiðra minningu ástvina og gæludýra.
Við búum til vönduð skilti með nafni, fæðingar- og dánardegi, tákni og stuttri kveðju, unnin úr endingargóðum efnum sem þola íslenskt veður.
Skiltin henta á krossa, legstaði, minningarstaði og gæludýragrafir og eru sérsniðin að óskum aðstandenda.

Skiltagerð síðan 1999 - Persónuleg þjónusta og gæða efni.

Lykilatriði

  • Framleitt á Íslandi
  • Skiltagerð síðan 1999
  • Frí heimsending um allt land
  • Auðveld uppsetning (sterkt límband)
  • Hentar á allar stærðir krossa.
  • Veldu stærð eftir krossastærð eða leiði.
Skiltagerð á íslandi síðan 1999

Hvaða efni hentar þér?

Akrýl (Tvílitað): Svart með hvítum stöfum sem eru grafnir í eða hvítt með svörtum stöfum sem eru grafnir í UV-varið efni sem hentar íslenskri veðráttu.

Ál: Okkar vinsælasta efni og hagkvæmasta. Klassískt og endingargott.

Hurðaskilti, nafnaskilti á hurð, hurðamerkingar, skilti á póstkassa

Hvernig pantar þú?

Veldu vöruna hér fyrir ofan sem hentar (akrýl eða ál ), sláðu inn nafn, fæðingar, dánardag, merki vinstra megin, merki hægra megin, persónulegan texta neðst og texta efst.

Hægt er að velja stórt eða lítið skilti, ef stærðin hentar ekki er ekkert mál að gera þau minni. Ef þú þarft stærra þarftu að senda okkur póst á sm@skiltiogmerkingar.is eða senda okkur skilaboð á síðunni hér.

Ef þú ert með séróskir er hægt að skrifa það í skilaboð með pöntun, við reynum að verða að öllum óskum.

FAQ

Algengar spurningar um krossaskilti

Hvernig festi ég skiltið á kross?


Öll skiltin koma með götum fyrir skrúfur svo það sé auðvelt að skrúfa það beint á krossinn.

Hvaða efni er best – akrýl eða ál ?


Akrýl (Tvílitað)
: Svart með hvítum stöfum sem eru grafnir í eða hvítt með svörtum stöfum sem eru grafnir í UV-varið efni sem hentar íslenskri veðráttu.

Ál: Okkar vinsælasta efni og hagkvæmasta. Klassískt og endingargott.

Hvað tekur langan tíma að fá skiltið?


Við framleiðum á Íslandi. Algengur framleiðslutími er 3–5 dagar og síðan sendum við með póstinum frítt um allt land.

Ég vill fá ákveðið útlit, er það hægt?


Við getum hannað útlit eftir óskum frá viðskiptavinum. Annað leturgerð, merki eða annað.