Terms of service
1) Terms of service (Skilmálar)
Skilmálar – Skilti og merkingar
Síðast uppfært: 11. september
Með því að nota vefsíðuna okkar og/eða leggja inn pöntun samþykkir þú eftirfarandi skilmála. Ef þú ert ósammála skilmálunum skaltu ekki nota vefsíðuna eða þjónustuna.
1. Um okkur
Rekstraraðili netverslunarinnar er Skilti og merkingar.
Hafðu samband: sm@skiltiogmerkingar.is.
2. Pantanir og sérsmíði
Flestar vörur eru framleiddar eftir pöntun (t.d. með nafni, heimilisfangi eða sértexta).
Þú berð ábyrgð á að upplýsingar sem þú slærð inn (t.d. stafsetning, nafn, heimilisfang, stærð/efni) séu réttar áður en pöntun er staðfest.
Við áskiljum okkur rétt til að hafna eða hætta við pöntun ef grunur er um misnotkun, rangar upplýsingar, tæknileg mistök eða aðrar gildar ástæður.
3. Verð og greiðslur
Öll verð eru birt á vefsíðunni og eru með VSK nema annað sé tekið fram.
Greiðsla fer fram í gegnum greiðslulausnir Shopify og/eða aðra samþætta greiðslumiðla. Við geymum ekki greiðslukortaupplýsingar.
4. Framleiðslutími og afhending
Framleiðslutími getur verið mismunandi eftir vöru og álagi. Áætlaður framleiðslutími og afhendingarmáti koma fram í Sendingarstefnu (Shipping policy).
5. Skil, endurgreiðslur og kvartanir
Skil og endurgreiðslur eru útskýrðar í Skila- og endurgreiðslustefnu (Return and refund policy).
6. Myndir og litir
Myndir eru til viðmiðunar. Litur/áferð getur vikið lítillega frá milli skjáa og efnis/framleiðslulota.
7. Hugverkaréttur
Allt efni á vefsíðunni (textar, myndir, hönnun, merki o.fl.) er eign Skilti og merkingar eða réttmætur notandi/leyfishafi og má ekki afrita eða nýta án skriflegs leyfis.
Ef þú sendir okkur efni til framleiðslu (t.d. logo/mynd) staðfestir þú að þú hafir rétt til notkunar þess.
8. Ábyrgð og takmörkun ábyrgðar
Við leggjum metnað í gæði. Ábyrgð okkar takmarkast þó að því marki sem lög leyfa og nær almennt ekki til óbeins tjóns eða afleidds tjóns (t.d. tapaðrar veltu), nema skylt sé samkvæmt lögum.
9. Breytingar á skilmálum
Við getum uppfært skilmála af og til. Uppfærð útgáfa gildir frá birtingu á vefsíðunni.
10. Lög og varnarþing
Skilmálar þessir lúta íslenskum lögum. Ágreiningur skal að jafnaði reiddur til lykta fyrir dómstólum á Íslandi, nema annað leiði af ófrávíkjanlegum reglum.