Sérsmíðuð málmskilti

Sérsmíðuð málmskilti

Við hönnum sérsmíðuð málmskilti fyrir þig, þitt fyrirtæki eða ákveðið verkefni.

Til dæmis fyrir:

  • Barmmerki
  • Verðlauna bikar
  • Herbergisnúmer á hótel
  • Lyklakippu
  • Legstein
  • Minnisvarða

Sérsmíðuð málmskilti

Við höfum verið að gera sérsmíðuð málmskilti fyrir ýmis fyrirtæki, félög, hótel og fl. Við getum hannað eftir þínum þörfum.
Smíðað er úr plötum eftir málum og fer þykkt oftast eftir stærð skiltis. Grafið er í málma eins og 316 riðfrítt, messing, ál, 0,5 til 4 mm. þykkt.
Gott er að senda inn mynd með málum, hæð og breidd af því sem skiltinu er ætlað að fara á.  Sama á við tveggjalaga plastskiltin. Þau koma í 1,5 og 3,2 mm þykku efni sem er grafið í, líkt og hurðaskiltin okkar.
Hægt er að panta sérsmíðuð plastskilti með því að ýta HÉR.

Vinsamlegast setið fram smá hugmynd um hvernig skiltið á að vera í laginu og hvað á að grafast í efnið sem valið er.  Gott er að skoða sýnishornin hér fyrir ofan með til að gera sér grein fyrir og fá hugmyndir um útlit og ummál á skilti.

Þegar þessar upplýsingar hafa verið sendar, sendum við til baka tölvuteikningu sem sýnir uppsetningu og lag á skiltinu sem má svo breyta þar til útlitinu er náð sem óskað er eftir.

Skiltin eru greidd eftir að ákveðið hefur verið hvernig skiltið á að vera og verð hefur verið gefið upp eftir að endanleg pöntun hefur farið fram.

Pöntunin í framleiðslu eftir að greiðsla berst með:
Reikning sem er sendur á heimabanka með kennitölu sem þú veitir
eða
millifærslu inn á bankareikning nr: 0133-26-016797 kt. 450901-3260 nema um annað hafi verið samið.

Einnig má hafa samband á netfanginu [email protected] eða í síma 454-1001.

    Nafn

    Netfang

    Titill

    Skilaboð

    Öryggiskóði:
    captcha

    Tengdar vörur